Kjartan Steinarsson Framkvæmdarstjóri
Sími 420 5002
kjarri@ksteinarsson.is

Sigtryggur Steinarsson
Sölustjóri og löggiltur bifreiðasali
Sími 420 5001
sigtryggur@ksteinarsson.is






K.Steinarsson ehf. var stofnað í nóvember árið 1999 af Kjartani Steinarssyni og tók strax við umboði til sölu á nýjum og notuðum bifreiðum fyrir Heklu hf. og seldi einnig bifreiðar fyrir einstaklinga. Þá var fyrirtækið staðsett að Brekkustíg 39 í Reykjanesbæ.

Í júlí 2000 fluttist fyrirtækið í nýtt og glæsilegt húsnæði að Njarðarbraut 13 í Reykjanesbæ, á sama tíma tók K.Steinarsson ehf. við þjónustuverkstæði fyrir VW, MMC, Audi og Skoda. Þar störfuðu að jafnaði 8 starfsmenn; 5 starfsmenn á verkstæði, 2 á bílasölu og einn í bókhaldi.

Þann 1. júní 2011 flutti K.Steinarsson reksturinn að Holtsgötu 52. Samhliða þeim flutningi sagði fyrirtækið upp samningum við Heklu og lagði niður verkstæðisþjónustuna. Í dag er K.Steinarsson umboðsaðili fyrir Öskju sem selur KIA og Mercedes Benz.
Skoða KIA Skoða Benz